Gagnslausa upplýsingamiðstöðin
04.03.2007 13:45:50 / nopoint_dadi

KOMMENTIÐ KOMMENTIÐ KOMMENTIÐ

Ég fór í 20 ára afmælisveislu í gær til hennar Mæju og það var æði!  Til að byrja með fórum ég, Tryggvi, Doddi, Kristján, Himmi og Eyvi í þríliðaleik í borðtennis með 2-3 þremur kúlum í senn. En það var ekki aðeins það sem var svona æðislegt heldur kom litla systir Mæju og sagði " Ég veit að þetta er asnaleg spurning en get ég fengið eiginhandaráritun?" sem ég auðvitað gaf og þetta atvik, eins og við enskunemar segjum, "made my year" Ekki oft sem maður fær að gefa áritun :haha:
En að öðrum skemmtilegum hlutum, en ekki jafn skemmtilegum, þá ætlum við sem spilum saman fótbolta að stofna utandeildarliðið Boutrs-Ghali og erum við að fara að keppa æfingaleik kl 17 í dag en markmenn eru af skornum skammti:S
Svo ég haldi áfram í skemmtuninni þá fór ég í ensku próf á föst og viti menn haldiði að ég hafi ekki fengið 9. Enskan er snilld:lol:

Reynið svo að kommenta eitthvað svo ég sjái að einhver skoði þessa síðu!!!!!!!!

Ívar Már Ottason skrifaði
Það er nottla bara snilld! Spurning hvort að við förum ekki bara að hringja í Einar og fáum hann til að plögga svona áritunar bás í smáralind?? Getur prentað út plagöt og svona sem þú getur skrifað á... Þú og Inga Sæland getið jafnvel deilt bás, þ.e.a.s. þegar hún er búin að vinna X-Factor...
Geiri skrifaði
Þessi leikur er svo mikið snilld. Eins og Bond hefur nú bjargað sér úr ýmsum klípum, þá urðu við vitni af falli Bonds. Þú hélst samt helvíti lengi inn á þrátt fyrir þynnku.
Geiri skrifaði
Jæja, eins steikt og síðasta komment var, þá var það ekki jafn steikt og leikurinn. Rétt skal vera rétt.
Daði skrifaði
Geir:ég var líka ekkert að hlaupa of mikið, tók 3-4 spretti allan leikinn Ívar: Það er ekkert spes að vera í smáralind í bás að gefa áritanir. Þegar fólk labbar upp að manni með hugrekkið til að spyrja hvort einhver vill gefa eiginhandaráritun. En hvað Ingu varðar vil ég ekki koma nær en þegar trailer fyrir X-Factor er sýndur í sjónvarpinu
Soffía skrifaði
Ég skoða, ég skoða! Til hamingju með áritunina og 9una. Gott að allt gengur vel :) Sjáumst á morgun, Soffía
Jóna Björk skrifaði
Ég er líka alltaf að skoða:o) en er eiginlega hætt að kvitta hjá öllum.
Þórhallur skrifaði
Skoðað - kvittað!
Anna Þóra skrifaði
hæhæ æðislegt að heyra með 9-una og að sjálfsögðu eiginhandaáritunina hún frænka mín er the biggest fan ever :P
Drekafluga skrifaði
Ég held alveg örugglega að ég eigi einhvers staðar áritun frá þér. Eftir nokkur ár verð ég annað hvort kúl, sýni þetta og segi "Þett er vinur minn" eða ríkur, sel þetta á Ebay og segi "I m in the money".
Daði skrifaði
Drekafluga: Ég er nú þegar kominn á b2.is fyrir síðuna http://www.myspace.com/felagislenskradada og já þetta er fyrir alvöru
Sólveig skrifaði
ég kíki alltaf við :)
Hrafnhildur systir skrifaði
Maður er alltaf á gá! Ég á líka fullt af ritsýnum frá þér...einhversstaðar

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti