|
|
18.09.2007 02:08:37 / nopoint_dadi
Amma mín var yndislegasta manneskja í heimi en föstudaginn 14.sept bar ég hana á sinn síðasta hvílustað. Hún var alltaf brosandi og raulandi einhvern meðan hún gat og mun ég alltaf minnast hennar þannig. Ekki nóg með að vera síkát heldur gerði hún allt sem við barnabörnin báðum hana um og átti fjöldan allan af spólum, þó svo að aðeins ein hafi skipt máli(Ski Patrol), Tarzan blöðum og leikfangabílum til að leika sér með á teppinu í stofunni. Þegar maður gisti hjá henni, sem við frændsystkinin gerðum eins oft og við gátum, öll 16, fékk maður alltaf eins mikið af súkkulaði kexi eða kökum og maður gat í sig látið....í morgunmat. Já eða örbylgjubrauð með aromati. Þegar ég hugsa um ömmu mína þá er hún alltaf brosandi tilbúin til að gera hvað sem er til að gleðja mann. Ég sakna hennar mjög mikið.
»
13.09.2007 19:19:07 / nopoint_dadi
Í tíma í dag skrifaði ég í hálftíma um hversu lélegur ég er að skrifa og það gekk mjög vel Hvað þýðir það?
»
16.08.2007 15:50:01 / nopoint_dadi
Búja

þetta át ég í DK

það voru svona margir þegar ekkert var í gangi inná svæði
og það var svona heitt

þessi var í stuði á Type O

og ég nenni ekki að setja fleiri myndir inn því þetta var
vesen
»
09.08.2007 00:23:18 / nopoint_dadi
Danmörk er svaðalega leiðinlegt land ef maður er ekki þar til að
drekka !! Það vildi þannig til að ég var staddur þar frá
28.-31.júlí og nálægt Radhusplads meira að segja og þar var ekkert
að gera nema labba strikið, gerði það 3, eða horfa á
heimsmeistarmót heimilislausra í fótbolta. Þetta tekur ekki langan
tíma að gera. En viti menn 1.águst er góður dagur. 10 klst
rútuakstur í gegnum þýskaland á leið til Wacken Open Air er miklu
skemmtilegri en Danmörk. Einnig að sitja og gera ekki neitt í 30
stiga hita á campi í kringum 78þús annað fólk á þungarokkshátíð að
bíða eftir að horfa á geðveikar hljómsveitir!!!
Þeir sem ekki vita var ég að koma heim af wacken þungarokks
útihátíð á Wacken í Þýskalandi þar sem ég var 4 daga í 30 stiga
hita, very nice. Og hvað er svosem hægt að gera á útihátíð sem
þessari, tjah. Jafnvel að fara á metal markt og borða franskar sem
virka eins og kittí á þarmana á manni svo maður þurfi ekki að fara
á klósettið Svo tekur maður stroll um verslanirnar og kaupir sér
kannski töff bindi, geisladiska, armband, kickass Black Label
Society úr og eitt stikki skotapils, það er rétt ég á skotapils.
Svo skellir maður sér á tónleika með hljómsveitum á borð við
Blind Guardian(geðveikt góðir)
Immortal(ekki góðir)
Saxon(komu skemmtilega á óvart)
Type O Negative(úturdópaðir skemmtikraftar)
Dimmu Borgir(Staðurinn á mývó er betri)
Lacuna Coil(leiðinda fólk í þeirri hljómvseit)
Destruction(ekki hægt að klikka með 3 trommara á sviði í
einu!!!)
Rage(ekki gaman af þeim sem kom á óvart)
DirenGray(hundleiðinlegir)
JBO(aðeins skárri en DirenGray)
Turisas(með harmonikku og fiðlu ásamt heavy metal
riffum...geggjað)
Amorphis(Sem voru fínir)
Týr(Sem stóðu uppúr að mínu mati)
Turbonegro(þar erum við að tala um showmanship! geðveikt góð
sviðsframkoma)
Gutbucket(eðal rokkarar þar á ferð, mæli með Burn the Radio
laginu)
Dimension Zero(inniheldur gítarleikara úr In Flames og voru bara
ekki skemmtilegir)
In Flames(og þeir voru kick ass!!!!! brjálað gaman á þeim
tónleikum)
MEÐ KLAKAVÉL
»
23.06.2007 23:30:26 / nopoint_dadi
Tannlækningar eru ekkert nema peningaplott!?! Til að byrja með
getur það varla verið mjög heillandi að hafa hendurnar uppí
munninum á fólki allan daginn, en á annað borð finnst mér skordýr
líka ekkert heillandi en sumir safna þeim líka svo kannski er þetta
hobbý hjá fólki. En! tannlæknirinn minn hringdi í mig og sagði mér
að mæta í skoðun sagði svo að það væri allt í lagi, sem ég vissi
fyrir! nema að það þyrfti að taka endajaxlana og hann ætlaði að
senda mig til annars tannlæknis til að sjá um það. Þetta kostaði
mig 7000kr. Svo fór ég til þessa sem hann sendi mig til og hann tók
einhverjar myndir og sagði mér að koma seinna. Svo kem ég í 3
skipti og hann fer að taka úr mér endajaxlana og eftir helming af
"aðgerðinni" lítur hann á myndina af jaxlinum og segir "aaa ok hann
er svona"!!!! Mjög traustvekjandi það! En hann kvaldi mig þarna í
hálftíma og lét mig fá reikning uppá 33000kr. en fæ samt eitthvað
endurborgað frá tryggingarugli. Þannig akkúrat núna er ég með
blóðbragð í munninum..namminamm
En ég var að lesa það að Slipknot væru að fara að gefa út nýjan
disk 2008 BÚJA!! og að Corey Taylor væri að vinna með Antrax
á nýju plötunni þeirra sem söngvarinn? og Joey Jordison er að fara
að tromma með Korn því þeirra trommari er víst kominn í hlé
»
02.06.2007 14:25:30 / nopoint_dadi
Ég var að spá... Ef vampíra bítur einhvern sem er smitaður af
HIV veirunni...hvað verður þá um vampíruna?!? Annað hvort verður
þetta alveg þvílíkt fucked up vampíra eða lykillinn að lækningu. Ég
hef einnig aðra spurningu: Afhverju þola vampírur ekki hvítlauk? og
afhverju get ég ekki notað rauðlauk eða graslauk og talandi um að
þola ekki graslauk þá þolir Hexía DeTrix ekki heldur hvítlauk en
hún er norn. Þýðir það að nornir þoli ekki graslauk heldur? sem
snýr aftur að spurningunni minni: Getur hún þá notað alla aðra
lauka? og hvað gerist ef vampíra borðar óvart hvítlauk? en ef að
vampíra fær stóra flís? og hversu lengi getur vampíra haldið niðrí
í sér andanum? því ef þær anda þá ætti maður að geta kyrkt þær
líka!....ég er búinn að vera að spila vampíru leik
"One German is a philosopher, two Germans are a beer
pub,
three Germans are a heavy industry, four Germans are a world
war"
»
02.05.2007 21:50:32 / nopoint_dadi
Ég er í prófum og þessvegna hef ég tíma til að gera svona
Which Action Hero
Would You Be? v. 2.0
created with QuizFarm.com
og lesa um hina og þessa leikara t.d. William Shatner og það sem
hann hefur að segja "I am not a Starfleet commander, or T.J.
Hooker. I don't live on Starship NCC-1701, or own a phaser. And I
don't know anybody named Bones, Sulu, or Spock. And no, I've never
had green alien sex, though I'm sure it would be quite an evening.
I speak English and French, not Klingon! I drink Labatt's, not
Romulan ale! And when someone says to me 'Live long and prosper', I
seriously mean it when I say, 'Get a life'. My doctor's name is not
McCoy, it's Ginsberg. And tribbles were puppets, not real animals.
PUPPETS! And when I speak, I never, ever talk like every. Word. Is.
It's. Own. Sentence. I live in California, but I was raised in
Montreal. And yes, I've gone where no man has gone before, but I
was in Mexico and her father gave me permission! My name is William
Shatner, and I am Canadian!"
Annars lék ég í Thingtak myndbandi(er
maðurinn á bassanum þegar sést aftaná hljómsveitina sem gerist
kannski 2x) ásamt Rimmugygur(held að ég sé að fara rétt með nafnið
þarna) við lagið Ragnarök og þrátt fyrir mikla bið þá var það bara
nokkuð gaman og voru víkingarnir nokkuð svalir
Annars tóku Liverpool Chelsea í vító og komnir í úrslit
meistaradeildarinnar en ég er farinn að hallast að Reading FC, þeir
eru helvíti svalir
»
16.04.2007 01:10:39 / nopoint_dadi
Auglýsingin með gospel kórnum sem syngur um nýjan tíma er
afskaplega leiðinleg og pirrandi
Dominos líka
Talandi um Dominons þá bragðast allar pizzur frá þeim eins
Bandaríkjamenn eru ekki eins slæmir og maður heldur en flestir
Mr-ingar eru það
Einhverja hluta vegna hitti ég alltaf kvennskælinga á Prikinu
True Lies er ultimate hasarmynd því það er allt í henni!!
Styx er ein öflugasta hljómsveit allra tíma
Lemmy er guð
Menn bragðast eins og kjúklingur
Ac Milan og Liverpool yrði besti úrslitaleikurinn því Liverpool
þarf að vinna án þess að fara í vítaspyrnukeppni og Milan þarf að
hefna fyrir tapið
Liverpool vinnur líklegast ekki Meistaradeildina því það gerist
aðeins við vissar ástæður
Hver einasta hryllingsmynd sem kemur í bíó er óhugnalegasta mynd
síðustu ára
Ring er ennþá óhugnalegasta mynd sem ég hef séð
TMNT er algjörlega þess virði
300 er brjálað flott og góð mynd
Síðasti South Park þáttur var góður
Pöndur eru gotharar
Dagur án sólskins er eins og nótt
Hversu hratt ferðast myrkrið?
Ég vil kýla hval, beint í andlitið
Ef ég kyrki strump hvernig verður hann á litinn?
Eddie Izzard ætti að vera drottning Englands
Það eru til svokallaðar silvur kúlur "silver bullets" sem innihalda
úraníum
Svokallað DU(depleted uranium) skot
Ef googlað er DU baby sjást myndir af börnum sem hermenn sem báru
þessi skota hafa átt en ég mæli ekki með því fyrir viðkvæma
5 tímum eftir að ég fæddist varð Tjernobil slysið
»
18.03.2007 22:36:07 / nopoint_dadi
Síðustu viku höfum við Daðar verið í aukinni umfjöllun í fjöðmiðlum
landsins (http://www.visir.is/article/20070315/LIFID01/103150084/-1/LIFID)
En þannig er mál með vexti að ég og annar Daði, Daði Rúnar sem
viðtalið var tekið við, höfum tekið að okkur að safna saman Döðum
og berjast fyrir hagsmunum okkar. En koma mín í Fréttablaðinu
er ekki það eina sem gerst hefur
Haldin var árshátíð enskunar föstudaginn 9. mars og var hún ekki af
verri endanum(sem er btw hvaða endi?) og var þar m.a. haldið
happdrætti og milli þess sem var gefið frítt á poolstofuna,
baðvörur og máltíð á american style vann ég þessa dýrindis klámmynd
very nice. Einnig steig ég á stokk með 2 stjórnarmeðlimum
og sögðum við nokkra lélega brandara meðan við vorum að tannbursta
okkur og spýta allir í sama glasið eftir burstunina(og ég týndi
tannburstanum mínum eftir þetta atriði) en þetta atriði endaði með
því að formaður enskunnar(sem var með í atriðinu) þurfti að drekka
úr spýtiglasinu við mikin fögnuð okkar sem ekki þurftu að drekka

any thoughts?
»
04.03.2007 13:45:50 / nopoint_dadi
Ég fór í 20 ára afmælisveislu í gær til hennar Mæju og það var
æði! Til að byrja með fórum ég, Tryggvi, Doddi, Kristján,
Himmi og Eyvi í þríliðaleik í borðtennis með 2-3 þremur kúlum í
senn. En það var ekki aðeins það sem var svona æðislegt heldur kom
litla systir Mæju og sagði " Ég veit að þetta er asnaleg spurning
en get ég fengið eiginhandaráritun?" sem ég auðvitað gaf og þetta
atvik, eins og við enskunemar segjum, "made my year" Ekki oft sem
maður fær að gefa áritun 
En að öðrum skemmtilegum hlutum, en ekki jafn skemmtilegum, þá
ætlum við sem spilum saman fótbolta að stofna utandeildarliðið
Boutrs-Ghali og erum við að fara að keppa æfingaleik kl 17 í dag en
markmenn eru af skornum skammti
Svo ég haldi áfram í skemmtuninni þá fór ég í ensku próf á föst og
viti menn haldiði að ég hafi ekki fengið 9. Enskan er
snilld
Reynið svo að kommenta eitthvað svo ég sjái að einhver skoði
þessa síðu!!!!!!!!
»
10.01.2007 13:57:05 / nopoint_dadi
Þá reynir maður að fara aftur í gang. Kom mér á óvart hvað
það er ekki hægt að blogga í jóolafríi. Ég held að það sé
útaf því að maður þarf að setjast niður og ákveða að blogga en í
jólafríi gerir maður ekki neitt og er alltaf sitjandi og étandi
súkkulaði, ergó ekki hægt að setjast niður og slaka aðeins
á. En hvað gerði maður annars i jólafríinu, jú spilaði
tölvuleiki og hvaða leikur þá helst? jú auðvitað mortal kombat, sem
Sub-Zero, og sá líka einhverja teiknimyndaþátt um Mortal Kombat þar
sem enginn annar en Luke Perry er rödd Sub-Zero, og Ron Pearlman er
líka á meðal raddgjafa, hversu svalt????...ekkert mjög:/
En að einhverju sem fólki leiðist hugsanlega ekki þá er ég búinn að
fara á skrifstofu hí og skila inn eyðublaði um að skipta yfir í
ensku og konan á skrifstofunni sagði að ég ætti að geta skráð mig í
öll fögin á vorönn svo...jeij
»
07.12.2006 23:56:51 / nopoint_dadi
Þá er maður búinn að borga Wacken
og ekkert að gera nema að bíða eftir að ágúst mánuður kemur!Þá
verð ég að hlusta á IN FLAMES, hljómsveit sem ég byrjaði að
hlusta á þegar ég var 12 ára !Blind Guardian sem eru geðveikir
í hetjumetal og svo hugsanlega ICED EARTH, fyrir þá sem ekki
vita þá er fyrrum söngvari Judas Priest(sem koma hugsanlega
líka) í þeirri hljómsveit og myndin ROCK STAR með Mark Wahlberg
er byggð á honum!annars er hægt að sjá á wacken.com þær sem eru
staðfestar en ef Ozzfest verður ekki á sama tíma þá mun
BLS,Black label society, sem hefur að geyma Zakk Wylde, fyrrum
gítarleikar Ozzy, spila á Wacken.
Samkvæmt síðustu könnun, nú er komin framhaldskönnun, hafa 14 af
þeim 21 sem tóku þátt séð mig nakinn. Hope you enjoyed the
show.
Myspace er einstaklega skemmtilegt fyrirbæri! Ég man ekki
afhverju ég nældi mér í eina svoleiðis síðu en það er furðulega
skemmtilegt að sanka að sér myspace "vinum". Sérstaklega
þegar menn eins og Matt Pretrey og Seth Sharp adda manni inná, og
nei ég veit ekkert hverjir það eru. Fín leið til að halda uppi
þeirri tálsýn að maður sé í sambandi við fólk sem maður þekkti einu
sinni
Buffaló hjörð kemst aðeins eins hratt(eða hægt) og hægasti meðlimur
hennar. Þessvegna þegar ljón nær að veiða hægasta meðliminn
kemur það sér vel fyrir hjörðina því þá kemst hún hraðar því má
álykta að þegar maður drekkur bjór er maður að eyða lélegu
heilasellunum, ergó bjór gerir mann gáfaðri!
»
26.11.2006 15:24:32 / nopoint_dadi
Mér leiðist spurningin "Bítlarnir eða Stones?" einfaldlega vegna
þess að ég hlusta á hvoruga sveitina og finnst þær nokkuð
illþolanlegar. Ég get falist á það að þær voru góðar í því sem þær
gerðu og höfðu stór áhrif á rokkheiminn en það sem ég þoli ekki er
hvernig þeim er alltaf þröngvað uppá mann eins og maður þurfi að
fíla þær regardless of. Ég er nú líka þannig að þegar alltaf
er verið að hamra á að maður eigi að hlusta á hitt og þetta eða
finnast það vera eitthvað spes þá kviknar á einhverju inní mér sem
segir bara "stopp! ekki vera að þröngva þessari vitleysu uppá
mig"en ég veit þó svo mikið að George Harrison var besti
bítillinn. Ástæðan fyrir því að ég er ekki partýlaga
gítarleikari er líklega vegna þessa sérkennis míns. Ég einfaldlega
kann ekki lögin sem allir eiga að kunna(ég hef aldrei lært Wild
Thing t.d. og plana ekkert sérstaklega að læra það)og verð ég
yfirleitt að neita fólki sem vill að ég spili
einhver týpísk partýlög, nema þá þegar ég og Daði R. náum
að starta Colorful eða Bother og ef einhver vill heyra Opeth og lög
sem erfitt er að syngja með....og aldrei hef ég hlustað sérstaklega
á Elvis heldur
Freddie Mercury heitir réttu nafni Farrokh Bulsara og þetta var
500þús króna spurning einu sinni í meistaranum og þetta vissi
ég!!!!. Hefði ég komist í tiltekinn þátt væri ég hálfri milljón
ríkari í dag, crap. Ætli Queen sé ekki í flokk með þeim
sveitum sem reynt er að þröngva uppá mann og eru þeir félagar
efstir á mínu blaði. Þorið þið að kommenta núna?
»
09.11.2006 16:29:11 / nopoint_dadi
How the hell did this happen?
 
góð þróun???
Fyrst ég er alltaf í tónlistinni þá er best að kynna H.I.M til
leiks. Snilldar rokkarar þarna á ferð, sem svo skemmtilega
vill til að erfitt er að nálgast á Íslandi. Ég fann reyndar
einn disk með þeim í skífunni en það er vonlaust að finna
annan(hvað þá Stone Sour, Dragonforce, Blind Guardian eða In
FLAMES!!sem eru ofarlega á mínum lista) það er hugsanlega hægt að
finna þá innan um óreiðuna sem kallar sig Skífan og var í makeover
þar sem búið er að mála allt hvítt og hún lýtur út eins og stofnun!
en það á að fara að nýta neðri hæðina sýnist mér á laugaveginum
þannig...good shit. Annars er Spanó(lögfr. kennari) að missa sig og
farinn að pikka random fólk til að segja hvað því finnst um ákveðið
málefni og ég fæ nett panik um að hann muni velja mig því ég hef
aldrei skilið spurninguna sem hann spyr og það er aðeins of mikið
að lesa þessa dagana enda er maður nett að fara að lesa yfir prófin
sem eru að koma og ég mun falla í, geðveikt stuð 
Hvort er Enska með kvikmyndafræði eða Almennar Bókmenntir með
kvikmyndafræði málið
hvað með að kommenta smá?!?! og taka þátt í könnuninni?
»
28.10.2006 17:34:59 / nopoint_dadi
Jæja, aftur af stað. Ég fór í mitt fyrsta próf síðasta laugardag
og það gekk ekki betur en svo að ég er nokkuð viss um að villurnar
séu fleiri en rétt svör og þarna er dregið niður fyrir röng svör.
Hversu vel getur manni líka svosem gengið í námi sem maður vill
ekki vera að læra, þá skiptir allavega ekki máli hvað mig varðar
hversu mikið ég les ef mig langar ekkert sérstaklega til að lesa
það. Það situr allavega ekki mikið eftir. Eftir prófið skelltum við
Íbbi, Frikki og Jorri á Hverfis í "skemmtilegheit" þar. Entumst þó
furðu lengi á þeim blessaða stað. Fórum svo á Celtic Cross í
"líkherbergið" og verð ég að segja að það er einn besti staður sem
ég hef farið á niðrí bæ þannig ef svo furðulega vill til að ég
skelli mér niðrí bæ er þetta klárlega pub of choice. Þar hittum við
þennan voða skemmtilega mann sem hafði fengið sér aðeins of mikið
en hann labbaði upp að okkur og spurði fyrst við hvað við fengumst
og eftir að við sögðum honum að við værum laganemar fór hann að
rífast í okkur um réttindi fatlaðra(hann er þroskaþjálfi) og hann
heyrði ekki eitt stakasta orð sem við sögðum, eða þeir, ég sat og
reyndi að halda hlátrinum niðri og hélt mig utan rifrildanna. Eftir
klst rifrildi um það þróuðust samræðurnar í Virkjanamál og ég
keyrði heim,jeij. En ég þarf að koma mér í samband við
deildarstjóra málvísindadeildar og stefni á nám í almennum
bókmenntum, hljómar spennandi ekki satt . Það sem hefur á daga
mína annars drifið er mest lítið nema hvað ég varð mér úti um nýja
Stone Sour diskinn og hann er einn sá besti sem ég hef hlustað á!!!
Mæli með Zzyxz Rd.
Through
Glass (sem ég frétti að væri í spilun á FM-957 en ætli þeir
viti að þeir eru að hlusta á þungarokk þar sem 2 af meðlimum
Slipknot er að finna?), Reborn er líka
þarna ofarlega á lista (linkar á lögin á youtube ef þið klikkið
á nöfnin)
og þá er það gagnslausi hluti færslunnar(ég reykna með því að
þið eyðið mestum ykkar tíma í að hugleiða alltaf fyrri hluta
færslunnar og reynið að læra smá af reynslusögum mínum þó það sé
ekki meira en að átta ykkur á hversu mikill og máttugur ég er) EN!
Herman Li úr
Dragonforce ,<-- linkur, er örfhentur en spilar rétthent á
gítar því hann átti ekki efni á gítar fyrir örfhenta(gaurinn
vinstra megin). Hann var einnig jafngamall mér,16, þegar hann
byrjaði að spila á gítar. I have to catch up. Endilega miðlið hvað
þið hafið verið að gera eða ekki gera í komment dálkinn hér að
neðan
»
Síður: 1 2
|
Dagatal
| mars - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | | 28 | 29 | 30 | 31 | | Fyrri | Næsti |
|